Valgerður Solveig Pálsdóttir
Ég útskrifaðist sem bowentæknir 2013 og hef unnið sem bowentæknir samhliða dagvinnunni minni síðan þá.
Ég heyrði af bowen, googlaði smá og leist mjög vel á og dreif mig í nám án þess að hafa svo mikið sem prufað að fara í einn bowentíma sjálf og sé sko alls ekki eftir þessari skyndiákvörðun :o)
Ég er með aðstöðu heima og tek í bowen á kvöldin og um helgar.
Bowen er mögnuð mjúk og mjög slakandi meðferð sem getur haft áhrif á ótrúlegustu hluti líkamlega og andlega. Bowen hentar öllum frá ungabörnum til aldraðra.
Ég hef setið í stjórn Bowentæknifélagsins um nokkurra ára skeið og núna síðustu ár sem formaður með frábæra meðstjórnendur með mér og okkar markmið er að kynna bowen betur fyrir öllum og vera meira sýnileg.
Hægt er að finna ýmsan fróðleik um bowen hér:
https://www.facebook.com/Bowent%C3%A6knif%C3%A9lag-%C3%8Dslands-110607278213786
Upplýsingar:
Heimilisfang: Logafold 68
Staður: Reykjavík
Svæðisnúmer: 112