“Ég fór í nokkra Bowen tíma til Sigríðar Heiðu Hallsdóttur haustið 2020. Ég mæli heilshugar með Bowen meðferðinni hjá Sigríði Heiðu, hún gerði mér mjög gott, dró úr verkjum og stuðlaði að bata. Ég fór í liðskiptaaðgerð á vinstri mjöðm í febrúar 2020. Eftir aðgerðina var batinn óeðlilega hægur, ég fann fyrir verkjum sem urðu m.a. til þess að ég gekk skakkur og skældur sem líklega gerði illt verra. Eftir Bowen-meðferðina dró úr verkjum en auk þess benti Sigríður Heiða mér á góð ráð sem og að sækja um sjúkraþjálfun hjá lækni. Bowen meðferðin og sjúkraþjálfunin hafa orðið til þess að nú er ég nánast algóður eftir liðskiptaaðgerðina, finn ekki fyrir verkjum og geng án þess að haltra.”
Jens Benedikt Baldursson, 69 ára.
Mjöðm
liðskiptaaðgerð
Location :