Algengar spurningar
Spurning: Hvernig finn ég Bowentækni
Þú getur fundið Bowentækni hér á síðunni undir „Finna Bowentækni“. Þar er hægt að leita af útskrifuðum Bowentæknum sem eru fullgildir meðlimir í Bowentæknifélagi Íslands.
Hægt er að leita eftir nafni, Heimilisfangi eða póstfangi
Spurning: Er nóg að mæta í 1 tíma
Ekki er hægt að ábyrgjast að meðferðaraðili þurfi aðeins 1 tíma í Bowen, vegna þess að hver og einn finnur mismunandi áhrif. Þó er hægt að segja, að meðaltali þurfi fólk, t.d. með stífan háls, axlarvandamál eða eymsli í baki, að koma í amk. þrjá tíma. Sum vandamál þarfnast fleiri tíma og sum jafnvel færri. Þó ættu flestir að finna einhverjar breytingar hjá sér fljótlega eftir meðferð.
Spurning: Er Bowen nuddmeðferð
Nei, það er ekki hægt að segja það. Meðferðin getur verið framkvæmd í gegnum léttan klæðnað og engar olíur eða miklum þrýstingi er beitt. Þó er ákveðin mjúk, rúllandi hreyfing gerð með höndum yfir vöðva og vöðvafestingar.
Spurning: Fyrir hvern er Bowen?
Bowen henter öllum allt frá ungabörnum til aldraðra
