Siðareglur
- Bowentæknar eru bundnir þagnarskyldu varðandi allar upplýsingar um meðferðarþega sína, og fara með allar persónulegar upplýsinga sem trúnaðarmál. Bowentæknum ber að virða lög og siðareglur félagsins í hvívetna. Bowentæknir þarf leyfi frá meðferðarþega ef veita á upplýsingar um viðkomandi milli bowentækna.
- Félagsmaður getur gert undantekningu á þagnarskyldu í algeru neyðartilviki eða með samþykki þess sem þegið hefur meðferð.
- Fullur trúnaður, heiðarleiki og virðing skal ríkja milli bowentæknis ogmeðferðarþega óháð þjóðerni, kynþætti, aldri, trúarbrögðum, litarhætti, kynferði, stjórnmálaskoðunum, siðferðilegum skoðunum og þjóðfélagsstöðu meðferðarþegans.
- Við meðhöndlun barna og ungmenna undir 18 ára aldri skal foreldri/forráðamaður vera viðstaddur. Börn eru ætíð í meðferð á ábyrgð foreldra/forráðamanna sinna.
- Bowentæknar leitast við að bæta líðan fólks með bowenmeðferðinni. Bowentæknar skulu í hvívetna gæta þess að lofa ekki nokkru eða gefa nokkurskonar tryggingu um áhrif meðferðarinnar. Við læknum ekki, breytum ekki lyfjagjöf eða sjúkdómsgreinum.
- Félagsmaður skal ekki veita meðferð undir áhrifum áfengis, lyfja eða annarra efna, sem slæva dómgreind hans
- Þegar meðferð er veitt skal bowentæknirinn vera hreinn og snyrtilegur til fara. Hann skal gæta hreinlætis og tryggja að húsnæði og búnaður séu hreinn og í góðu ástandi. Og haga störfum sínum þannig að hann sé stétt sinni til sóma.
- Bowentæknirinn skal jafnan sýna drengskap og virðingu í samskiptum sínum við aðra bowentækna og aðra meðferðaraðila.
